Vín og matur sem leiða fólk saman
Vinora skipuleggur viðburði og upplifanir þar sem vín og matargerð Castilla y León á Spáni eru í aðalhlutverki. Hvort sem tilefnið er einkasamkvæmi eða viðburður fyrir fyrirtæki veljum við umgjörð, mat og vín sem falla vel saman og sjáum um skipulagið.
Við erum Kristín og Hilmar
Við erum Íslendingar búsettir í Castilla y León og stofnuðum Vinora til að deila með öðrum því sem heillar okkur við svæðið: góðum vínum, ríkri matarhefð og áhugaverðum stöðum — og kynna fólkið sem stendur að baki þessum upplifunum.
Okkur finnst eitthvað sérstakt við að koma saman yfir góðum mat og víni og hafa tíma til að njóta samverunnar. Víngerð með karakter, vel valinn matseðill og gestgjafi sem hefur sögu að segja — þetta eru atriðin sem móta viðburðina okkar.
Vandað skipulag og persónuleg þjónusta
Við byrjum á að kynnast hugmyndinni þinni: tilefninu, hópnum og stemningunni sem þú vilt skapa. Út frá því mótum við dagskrá sem tekur mið af óskum þínum og fjárhagsramma. Við finnum réttu staðina, skipuleggjum matar- og vínupplifanir og samræmum allt sem þarf að ganga upp.
Hvort sem um er að ræða kvöldverð fyrir lítinn hóp, veisluhald í fallegu umhverfi eða fyrirtækjaviðburð fylgjum við verkefninu eftir frá fyrsta samtali þar til viðburðinum lýkur.
Með rætur í héraðinu
Vín og matargerð Castilla y León eru kjarninn í því sem við gerum. Við veljum staði og upplifanir út frá sérkennum þeirra, gæðum þjónustunnar og því hversu vel þau henta hópnum og tilefninu.
Það getur verið vínsmökkun og langur hádegisverður í góðum félagsskap, kvöldverður þar sem vín héraðsins ráða ferðinni eða nokkrir dagar þar sem heimsóknir til víngerða fléttast saman við góðan mat, menningu og tíma til að skoða sig um.
Við gefum hverri upplifun tíma og svigrúm svo gestir geti notið staðarins, samtalsins og samverunnar. Við hugum líka að ólíkum óskum innan hópsins, með vönduðum valkostum fyrir þau sem drekka ekki vín.
Skipuleggjum næsta viðburð saman
Segðu okkur frá því sem þú hefur í huga. Við hjálpum þér að móta viðburð þar sem vín, matur og staðir Castilla y León mynda fallega heild.